Mennska

“Maður var kannski vanari svipuhöggunum þá.” - Ragnhildur Sverrisdóttir

Bjarni Snæbjörnsson Season 1 Episode 40

Ragnhildur Sverrisdóttir er fyrrum blaðamaður hjá Morgunblaðinu og er einnig lögfræðingur, móðir, eiginkona og fjölmargt fleira. Í þessum þætti forvitnast ég m.a. um hvernig Ragnhildur upplifði alnæmisfaraldurinn og hvernig hún sér fyrir sér stöðu heimsmálanna í dag þegar kemur að málefnum hinsegin fólks. Svo ræðum við auðvitað ógleymanlega grein sem hún skrifaði í Tímarit Hinsegindaga árið 2022 þar sem hún sagði að mannréttindi okkar eru aðeins eins og "litrík olíubrák sem liggur yfir öllu, nóg til að lægja stærstu öldurnar. En auðvitað allt of þunn til að halda aftur af kraftinum í djúpinu til lengri tíma, fari að hvessa duglega". Það var svo skemmtilegt að eiga hispurslaust spjall við magnaða konu.

Instagram: @ragnsverris

---

Bjarni Snæbjörnsson heldur úti hlaðvarpinu Mennsku

til að gerast áskrifandi að Mennsku: www.bjarnisnae.com/styrkja

Hægt er að nálgast nýjustu bók Bjarna, sem heitir heitir einnig Mennska í næstu bókabúð.

www.bjarnisnae.com 

Instagram: bjarni.snaebjornsson

Facebook: https://www.facebook.com/bjarniactor 

Tónlist: Axel Ingi Árnason

Grafísk hönnun og bókakápa Emilía Ragnarsdóttir