Mennska
Mennska fjallar um fegurð fjölbreytileikans og það sem sameinar okkur. Ég fæ magnað fólk til mín sem er að gera heiminn að betri stað og við ræðum breyskleika manneskjunnar, mismunandi leiðir til sjálfsþroska og rannsökum mennskuna með berskjöldun að leiðarljósi.
Mennska (Humanity) adresses the beauty of diversity and what unites us. I meet amazing people who are actively making the world a better place and we discuss the human condition, our frailty and strengths and how we can self-improve. In short, we delve into our humanity with vulnerability as a guiding light.
Most episodes are in Icelandic and some in English.
Tónlist/music: Axel Ingi Árnason
Grafísk hönnun/cover design: Emilía Ragnarsdóttir hjá Forlaginu.
Instagram: bjarni.snaebjornsson
---
Hægt er að kaupa áskrift að mennsku hér: www.bjarnisnae.com/styrkja
Mennska verður þó alltaf opin og hverjum og einum er í sjálfsvald sett hversu mikið eða lítið þau vilja borga í "áskrift".
Episodes
45 episodes
"Berum virðingu fyrir öllum og tölum saman þaðan" - Kitty Anderson
Kitty er magnaður aktivisti sem hefur sannarlega sett sitt mark á baráttu hinsegin fólks á Íslandi og víða um heim. Hún sat í stjórn Samtakanna '78 frá 2014 til 2018 og í kjölfarið einbeitti hún sér að uppbyggingu evrópsku intersex hreyfingarin...
“Þá var ég á stað sem ég vissi ekki að væri til” - Kolbeinn Arnbjörnsson
Kolbeinn Arnbjörnsson er einstakur listamaður: leikari, myndlistarmaður og þúsundþjalasmiður, fyrir utan að vera faðir, kærasti og hið mesta gæðablóð. Í þessum þætti förum við í djúp samtöl um kulnun, sem Kolbein hefur reynt á eigin taugakerfi,...
"Við þurfum meiri nánd" - Embla Guðrúnar Ágústsdóttir
Embla Guðrúnar Ágústsdóttir er m.a. akvívisti, dansari og móðir. Hún hefur verið virk í aktívisma frá unga aldri og er ein af stofnendum tabu (tabu.is). Embla er einnig með mastergráðu í félagsfræði og hlaut grímuti...
“Ég trúi því að leikhúsið geti bjargað heiminum” - Gréta Kristín Ómarsdóttir
Gréta Kristín er leikstjóri sem hefur sett sitt mark á íslenskar sviðslistir á aðeins níu ára ferli sínum. Hún hefur leikstýrt fjölda atvinnusýninga og verið tilnefnd þrisvar til Grímunnar, íslensku sviðslistaverðlaunanna, sem leikstjóri ársins...
"Fólk er ofboðslega fljótt að dæma" - Særún Lísa Birgisdóttir
Særún Lísa er þjóðfræðingur, kennari og móðir sem hefur unnið síðustu ár við að kenna unglingum íslensku. Þegar hún var í þjóðfræðinámi eyddi hún töluverðum tíma í að rannsaka birtingarmyndir homma allt frá landnámi og fram yfir síðari heimssty...
“Maður var kannski vanari svipuhöggunum þá.” - Ragnhildur Sverrisdóttir
Ragnhildur Sverrisdóttir er fyrrum blaðamaður hjá Morgunblaðinu og er einnig lögfræðingur, móðir, eiginkona og fjölmargt fleira. Í þessum þætti forvitnast ég m.a. um hvernig Ragnhildur upplifði alnæmisfaraldurinn og hvernig hún sér fyrir sér st...
"Orðið 'kynvilla' er svo jaðarsett - þegar þú ert villtur ertu ekki heima" - Hafdís Erla Hafsteinsdóttir
Hafdís Erla Hafsteinsdóttir er fyrrum afrekskona í sundi og sagnfræðingur. Hún hefur eytt töluverðum tíma í sagnfræðirannsóknir á jaðarsettum hópum. M.a. gerði hún MA rannsókn um ungar konur sem voru dæmdar fyrir lauslæti á ástandsárunum ...
"Ég hafna alltaf yfirgangi" - Hörður Torfason
Þann 1. ágúst næstkomandi eru liðin 50 ár frá því að Hörður Torfason birtist í Samúel og opinberaði samkynhneigð sína fyrir alþjóð. Í þættinum fáum við að vita um aðdraganda þessa merka viðtals sem er einn af hornsteinum íslenskrar hinsegin sög...
“Samkennd er fallegasta afl sem við eigum” - Lára Rúnarsdóttir
Lára Rúnarsdóttir er einstök kona með ótalmarga hatta. Þessi misserin er hún eigandi Móa jógastúdíós sem leggur ríka áherslu á andlega iðkun, eflir sjálfsvitundina, virðingu fyrir líkamanum, innri hlustun & samkennd. Tilgangur Móa er að ska...
"Ég ákvað þá að leyfa listinni að eiga mig" - Aldís Amah Hamilton
Aldís Amah er mögnuð leikkona, höfundur og aktívisti. Hún hefur komið víða við á síðustu árum í listinni bæði á sviði og á skjánum. Svo er hún líka formaður Samtaka grænkera á Íslandi. Í þættinum spjöllum við auðvitað um listina, mýmargar tilra...
"Alein - saman" Bragi Páll
Bragi Páll er einn af okkar mögnuðu rithöfundum sem hefur gefið út fjölmargar bækur. Þátturinn er að þessu sinni óvenjulegur því ég fékk Braga til að lesa inn pistil sem hann skrifaði á facebook vegginn sinn í vikunni sem fjallar einfaldlega um...
„Þessi aðför að trans konum bitnar beint á sís konum“ - Arna Magnea Danks
Arna Magnea er einstök listakona og aktívisti. Hún er leikkona og nýlega var frumsýnd bíómyndin Ljósvíkingar þar sem hún brilleraði í stóru hlutverki. Hún er einnig með sérhæfingu í sviðsbardögum, kennari, móðir og ljóðskáld.Í þættinum f...
„Risa hagsmunaöfl hagnast á því að halda upplýsingum frá okkur” - Rósa Líf Darradóttir
Rósa Líf er einstök baráttukona. Hún er formaður Samtaka um dýravelferð á Íslandi sem hefur látið til sín taka síðustu ár. Hún er einnig læknir, hestakona og almennt mikið hreyfingu og heilbrigðan lífsstíl.Í þættinum tölum við að sjálfsö...
„Hún er þrálát hugmyndin um að fatlað fólk sé þiggjendur“ - Freyja Haraldsdóttir
Freyja Haraldsdóttir er einstakur aktivisti og doktorsnemi sem hefur komið víða við í baráttu sinni fyrir bættum heimi fyrir fatlað fólk. Í þættinum segir hún mér frá uppvextinum í Garðabæ, hvernig flutningur fjölskyldunnar til Nýja Sjálands mó...
„Það þýðir ekki að breiða yfir allt sem er erfitt" - Inga Auðbjörg Straumland
Inga Auðbjörg er kona ekki einhöm. Hún vinnur vanalega sem verkefnastjóri og athafnastjóri og er einnig formaður Siðmenntar, félags siðrænna húmanista á Íslandi. Hún hefur óskaplega gaman af stjórnarsetu almennt og er mikill Eurovision-nörd. Þa...
"Það eru byltingar og breytingar í kortunum" - Jara Gian Tara
Jara er kyngimögnuð. Hún er stjörnuspekingur, yogakennari, tónlistarkona, coach og margt fleira fallegt sem gerir heiminn að betri stað. Í þessum áramótaþætti dembum við okkur djúpt í stjörnuspekina og skoðum árið sem er að kveðja og það sem er...
"Að berjast fyrir betri heimi fellur aldrei úr gildi" - Þorvaldur Kristinsson
Þorvaldur Kristinsson hefur lifað tímana tvenna. Hann fæðist í Hrísey árið 1950 og nám leiddi hann erlendis og aftur heim nokkrum sinnum. Á viðburðarríkri ævi tók hann virkan þátt í mannréttindabaráttu hinsegin fólks og fyrir þá mikilvægu vinnu...
„Kerlingabylting mun sameina okkur“ - Eva Rún Snorradóttir
Eva Rún er mögnuð sviðslistakona og höfundur sem hefur komið víða við á litríkum ferli. Hún hefur gefið út ljóðabækur, skrifað leikrit og verið mjög virk í sjálfstæðum leikhópum eins og Kviss búmm bang og 16 elskendum. Hún er nýbúin að gefa út ...
“Það er ekki hættulegt að leyfa fólki að vera eins og það er” - Daníel E. Arnarsson
Daníel E. Arnarsson er magnaður hugsjónamaður og hefur komið víða við á stuttri ævi. Hann var um tíma framkvæmdastjóri Vinstri grænna og starfaði einnig sem framkvæmdastjóri Samtakanna '78 í 7 ár. Þar að auki hefur hann verið á þingi sem varama...
"Það er ekki til quick-fix" - Dögg Guðmundsdóttir
Dögg Guðmundsdóttir er mögnuð kona sem hefur mikla ástríðu fyrir næringarfræði og heilbrigðu sambandi við mat. Hún er á lokametrunum að klára MS í næringarfræði vinnur við ráðgjöf innan heilbrigðiskerfisins.Við förum vítt og breitt í hið...
“Listin getur verið rás fyrir kærleikann” - Vigdís Jakobsdóttir
Vigdis Jakobsdóttir er ástríðufullur listamaður sem hefur komið að ævintýralegum verkefnum. Hún lærði leikstjórn í Bretlandi og við heimkomu byrjaði hún strax að leikstýra ásamt því að stofna fræðsludeild Þjóðleikhússins og starfaði þar í áratu...
"Ég sætti mig ekki við að vera smættaður niður í eitthvað eitt" - Bjartmar Þórðarson
Bjartmar er magnaður listamaður og sprenglærður í þokkabót. Hann vinnur jöfnum höndum við að leika, syngja, leikstýra og kenna auk þess sem hann nýtur þess að gera upp íbúðir.Sameiginlegir snertifletir okkar tveggja eru margir í lífi og lis...
"I put my life into 23kg bag to come here" - Ray Milano
Ray left his home country of Venezuela because of persecution because there he is a well known out gay man and drag queen, and he didn't feel safe. He moved to Iceland last year and has already made a huge impact on the queer community here wit...
"Við erum orka" - Jóhanna Jónas
Jóhanna Jónasdóttir er leikkona, heilar, þerapisti og dansari. Hún er móðursystir mín og hefur verið uppáhaldsfrænka frá því ég man eftir mér. Hún menntaði sig sem leikkona í Bandaríkjunum og átti mikilli velgengni að fagna í þeim bransa, fyrst...
"Afsala ég mér mannréttindum mínum því ég á erfitt með gang?" - Kolbrún Dögg Kristjánsdóttir
Kolbrún Dögg er sviðslistakona, höfundur, aktívisti og leikkona. Hún leikur nú í sínu eigin verki í Þjóðleikhúsinu sem nefnist Taktu flugið, beibí og þar segir hún frá lífshlaupi sínu, sigrum og hindrunum.Í spjalli vikunnar förum við vítt o...